Halló og velkomin á heimasíðuna okkar

Hrafnhildur Ósk Jakobsdóttir

Sæmundur Ingi Jakobsson



Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 20 júlí 2004. Lét aðeins bíða eftir mér því ég átti að koma 5 júlí. Þegar að ég fæddist var ég 51 cm og 16 merkur og með alveg kolsvart hár

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



Hrafnhildur Ósk

Vísa frá mömmu til mín.

Komin ertu káta snót
kærleik örmum vafin.
Skíni líf þitt sólu mót
stúlka blíðust talin.


 
Sæmundur Ingi

Fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var 16 merkur og 53 cm. Eins og systir hans lét hann aðeins bíða eftir sér, átti að fæðast 20 febrúar en fæddist 3 mars 2011.

Fiskar:

Til mömmu.
(Gömul þjóðsaga sem segir frá barni sem er við það að fæðast, barnið snýr sér að guði og segir:)

Mér er sagt að ég verði send á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítil og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tíman heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf svo sorgmædd því ég sé þig ekki oftar.
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara " mömmu".




Pabbi

Er maðurinn sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það er eins og það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast aftur niður á jörðina. Honum finnst skrýtið að lítið barn skuli ekki geta sofið alla nóttina og kúkað í klósettið eins og annað fólk. Samt veit hann allt !!!!!!
Svo þegar maður verður aðeins stærri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Til Pabba míns

Ég elska þig af því að þú elskar mig

mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf

Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið okkar

Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi

Ég elska þig vegna þess að þú er PABBI MINN !!!!

Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum öðrum finnist það

Pabbi er sá sem stendur fyrir hlýju og nánd

Netvinir mínir.

Eva Rún

Daníel Arnar frændi minn